Óraunverulegt

I love people. I love my family, my children . . . but inside myself is a place where I live all alone and that's where you renew your springs that never dry up. - Pearl S. Buck

Name:
Location: Reykjavik, Iceland

Eg er eg. Ooh, eg held ad eg aetti ad vera heimspekingur

Friday, November 25, 2005


Lota 2 í bulli. Nú hef ég Sufjan Stevens til að halda mér við efnið.
Svona í anda þess sem áður fór þá ákvað ég að bæta öðrum ketti við, eins og þið sjáið. Þessi er jafnvel ennþá sætari. Ég á erfitt með að trúa því að eitthvað svona skrípi gæti fæðst. En þetta bros bætir upp allt, ef bros má kalla.

Ég ætti að læra, en hver ætti ekki að vera að gera eitthvað gáfulegt í staðinn fyrir að líta í smáatriði í lífi annarra líkt og þið gerið með því að lesa þetta bull. Ekki misskilja mig, takk fyrir að eyða tíma ykkar í þetta, ég er mjög þakklátur, ekki búast við neinni greiðslu samt sem áður. Ég er búinn að kaupa mér vini, ég þarf varla að kaupa mér fólk sem les um líf mitt.

Ég skildi eftir skilaboð hjá vinkonu minni, hún náði ekki að það var ég. Mjög ánægjulegt, ég er það ósýnilegur að fólk veit ekki einu sinni hver ég er, jafnvel þeir sem þekkja mig. Ég er ofurlítið sár. Bara ofurlítið... þetta eru ekki tár á lyklaborðinu mínu... Sniff...

Ég ætla að lifa fallegu lífi. Fallegra en því sem ég hef lifað hingað til. Ómögulegt, þið segið, vitandi að ég er ekki lengur smábarn sem getur komist upp með það að æla, ropa og skíta á mig og samt talinn vera fallegasti engill þessarar veraldar. Þess vegna ætla ég að bæta mig í að koma með hvolpaaugu, falleg barnahljóð og raddarmisnotkun af öðrum toga. Ég held ég verði vinsæll.

Sufjan er snillingur! Þeir sem ekki vita hver maðurinn er þá er hægt að vita allt um hann á www.allmusic.com, býst ég við. Ef ekki þá er hægt að nálgast það einhvers staðar annars staðar. Netið er þeim eiginleikum byggt, fyrir þá sem eru að upplifa þessa nýjung í fyrsta sinn (Fólk úti á landi, sveitapakk, krakkar og aðrir ómevitaðir einstaklingar um hið stærra samfélag heimsmenningarinnar), að allt er hægt að finna, alveg sama hversu ógeðslegt, ánægjulegt, upplífgandi eða sorglegt það er og allt þar á milli, á netinu. Hvort það sé satt, rétt eða rökrétt er allt annað mál.

Afsakið greinina fyrir ofan. Ég meinti ekkert með því að setja krakka með hinum hlutanum vel vitandi að þeir geta ekkert af þessu gert (krakkarnir, þe.a.s.).

Þeir sem trúa því að ég meini eitthvað af því sem ég segi eiga að tileinka sér hugtak í nútímanum sem kallast kaldhæðni, stundum kallað írónía á útlenskri vísu. Þar sem ég er enginn hugtakasérfræðingur vil ég líka taka fram að tvö frekar lík hugtök sem ég hef aldrei náð að greina úr eru til á ensku sem ná yfir þessi hugtök, irony og sarcasm. Ég held að ég eigi við sarcasm í þessu tilfelli. Skiptir engu... búinn að tékka aðeins á þessu. Þetta fyrir ofan virðist ekki tilheyra öðru hvoru, hvað er svona lagað kallað? Háð?

Ég elska internetið hjá mér! Þráðlaust og vitlaust. Það virkar stundum ekki og ástæðan er mér hulinn ráðgáta. Þeir sem kunna á þessi tæki eru vinsamlegast beðin um að vinna hjá símanum í internet deildinni svo þetta geti komist í lag. Gerið það, ekki reyna að koma með útskýringar, ég vil að þetta virki gad dem itt! Ég er viðskiptavinur og ég hef rétt fyrir mér. Æm a konsúmer hor.

Það komið á hreint. Ég þarf að borða eitthvað. Ætti að borða eitthvað. En hvað. Veit ekki.

Vá, næst þegar ég ætla að skrifa ætla ég að velja mér einhvern aðeins styttri disk. þetta er orðið endalaust kjaftæði nú þegar og ég er rétt hálfnaður með diskinn. Ok, ef einhver les þessa síðu þá endilega segja mér hvort ég átti að hætta núna eða hvort það var rétt hjá mér að halda áfram.

Blúblablíbleblóblubloblá. Þetta byrjar vel.

Ég ætla mér að finna út jöfnu sem finnur út hlutfallslega leti námsmanna og fjölda verkefna sem þeir þurfa að skila innan við: a) önnina b) mánaðarins og c) vikunnar. Ég er viss um að ég geti fengið graf sem er fullkomin kúrfa sem fer stighækkandi eftir fjölda verkefnum þar til vissu hámarki er náð þar sem fullkomin hræðsla tekur völdin og verkefnin eru kláruð á mettíma með sem minnst vangaveltum um hvort verkefnið sé rétt eða rökrétt.

Er munur á því sem er rökrétt og rétt? Það sem er rökrétt þarf ekki endilega að vera rétt er það nokkuð? Geta órökréttir hlutir verið réttir? Spurning...

...Ákvað að drepa tímann á annan hátt. dæmi um íróníu: http://blogs.triplespublishing.com/macsobel/archives/2003_11.html neðri greinin.

Ræð ekki við mig
hvað um þig?

Wednesday, November 23, 2005


Fjandinn, hef ekkert að gera... (utan fyrir að gera það sem ég þarf og á að gera). Með öðrum orðum, ekkert.
Hérna sjáið þið mynd af uppáhalds kettinum mínum. Ástæðan er augljós. Sérð mynd af þessu kvikindi einu sinni og þú ert brosandi næstu mínútuna.

Leyfi Lisu Ekdahl að syngja í bakgrunninum. Ég er búinn að vera í fíling fyrir smá Blús, Djass... einhverju rólegu og niðurdrepandi. Gott fyrir sálina, vona ég.

Mig langar á útgáfutónleika í kvöld. Svona hálfgert þekki einn hljómsveitarmanna. Ætti að vera áhugavert.
Þessi köttur er snilld!
Er einhver búinn að sjá Serenity? Er það? Allt í lagi, ekki segja mér, ég á eftir að sjá hana. Er hún góð? Nú? Allt í lagi. Fer á hana.

Ég held að ég haldi áfram að skrifa um eitthvað og ekkert þangað til að Back to Earth er búinn að klára einn snúning. Eina sveiflu. Einn umgang, jú neim itt. Samt hef ég ekkert að segja, bara eins gott í rauninni. Menn eins og ég ættu ekki að tala mikið, samt geri ég það, úr hófi. Þannig er ég, býst ég við.
Ah, já. Ef einhverjir tölvuleikjafíklar frá helvíti hafa prufað u.þ.b. alla leiki í þessari vetrarbraut og suma á jörðu þá er hér einn annar til að bæta í safnið yfir obscure leiki sem þið hafið skemmt ykkur yfir í svona mínútu. Það er nóg, held ég. Vel gert samt.
Linkurinn er: http://joe.simnet.is/spitfire.html Mæli eindregið með honum... gott að pirrast yfir einhverju, kemur hjartslættinum í lag.

Mér líður yfirskilvitslega hlutlaust núna. Ekkert. Dálítið gaman. Samt ekki. Þetta er eins og að taka hlutleysi, bæta ofan á smá efasemdir um sitt eigið ágæti, hlutleysi þar ofaná, smá aðgerðarleysi og svo hlutleysi þar ofaná, berið fram meðan kalt er, með drykk, whatever (mæli með einhverju sem hefur koffín í því, ekkert bætir bragðleysi hlutleysisins líkt og einn sterkur kaffibolli eða 2.l af Kóki) helst á sem lengstum tíma með stórum bitum.

Ég vakti alla seinustu nóttina. Horfði á fjórar myndir og tók ekki eftir hvernig tímanum leið. Svaf því ekkert, fór beint í skólann með smá stoppi á Subway. Ég fer aldrei á Subway. Mér leið eins og í útlöndum.

Það er eitt sem útlönd eiga, þú gerir hluti sem þú myndir venjulega ekki gera, t.d. að borða á McDonald's. Þú borðar þar ekki dags daglega nema þú ert í landi þar sem chilli er borðaður sem snakk og bragðlaukar eru taldir vera lúxus sem enginn vill. Eftir nokkur skipti á velvöldum veitingastöðum heimamanna og nokkrum vel skipulögðum klósettferðum 10 sinnum á dag þá lítur McDonald's út eins og himnaríki fyrir bragðlauka og viðkvæma maga. Fyndið að það skyldi vera klósettsafn í einu landinu (Tælandi, ef ég man rétt), líklegast lokaður útlendingum vegna ofnotkunnar og mengunnaráhrifa.

Er ekki gott að segja bara eitthvað? Ég býst ekki við að neinn nenni að lesa svona langt, ég veit að ég mundi ekki nenna því! Til hamingju, ef þú hefur lesið allt! Ef ekki, þá fyrirgef ég þér, eins lengi og þú sendir mér smá umbun fyrir erfiðið sem átti að veita þér innblæstri og upplifun engri líkri. Svona 1000 kr. ætti að vera nóg.

Ætli heimurinn endi ef maður hversdagslega lýsir yfir ónægju sinni yfir guði, eða verður maður að koma með opinber mótmælenda spjöld, 10.000 þátttakenndur á Austurvelli eða fleirri og nokkrar vel útpæld slagorð líkt og: "Guð, hef ekki séð'an síðan seinasta sunnudag, 3.bill.+ árum síðan." "OK, epli=vont, hlusta á snáka=vont, reykja skrítna grasið=slæmt, býst ég við, en nóg er nóg, ég vil fara heim." "Í upphafi var orðið og orðið var: Gerð'eitthvað!" Nei? Ekki? Hvern hefði grunað Gvendólínu og Guðberg fyrir þvílíkar fýsnir!

Ég kláraði ritgerð um Don Kíkóta fyrir stuttu. Veit ekki hvernig mér gekk. Hef á tilfinningunni að ég fái fyrsta fall mitt á önninni... vonandi ekki. Væri frekar slæmt, þið sjáið að maður með jafn fjörugt ímyndunnarafl og ég á framtíðina fyrir sér... í dagdraumum. Ég sé það fyrir mér í Mogganum: Starfstilboð-Dagdreymir, kem með skrítnar, stundum fyndnar hugmyndir... kann lítið að stafsetja. Einhver sem vill mig? og ég fæ heilann helling af póstkortum frá fólki á Benidorm sem stendur á eitthvað eins og: Ég á pening, ekki þú! HAHAHAHAHAHA! og "Ok, sól, sumar, gellur, strönd og tequila: ímyndaðu þér þetta! HAHAHAHAHAHAHA!" svo á leiðinni heim er flugvélin þeirra að hrapa og eini sem getur bjargað þeim er ég og hugarflug mitt... Þá munu þau sjá eftir þessu, ójá, þau munu sjá eftir þessu.

OK... þetta er nóg

Binni var þar
Dóni gerði það

Hvað er nafn þeirra sem falla og voru aldrei nefndir til að byrja með? Hvað er það sem líður úr minnum manna og minnir manninn á munn mynnisins í minninu? Er lífið lítið líf í litlu lífi lítils anda? Hvað er ég að bulla?

Jamm, ég nenni hvort sem er ekkert að skrifa svo ég skrifa bara eitthvað eins og: Hæ!

Ha!

Búið...

Allt í fokki
át of lokki

Thursday, November 17, 2005

Langar einhverjum til að læra spænsku, munnlega þá aðallega? Hérna er eitthvað til að lífga upp á hana!

http://www.cervantesvirtual.com/FichaObra.html?portal=0&Ref=1270&audio=1

Hér er hægt að nálgast Don Quijote De La Mancha alla á spænsku, á hljóðupptöku!

Vona að þið skemmtið ykkur, þið sem getið.

Tuesday, November 08, 2005

Var að horfa á Star Wars aukaefni. Ég táraðist. Ég er svo mikið nörd

Er ekki lífið yndislegt? Er það? Ég veit það ekki, þess vegna spurði ég...
Þetta er búið að vera skrýtnir dagar upp á síðkastið. Ég ætti að vera að skrifa ritgerð, ég ætti að vera að vinna verkefni, ég ætti að vera að lesa helling af efni fyrir skólann en samt geri ég það ekki. Námsleiði? Varla, ég hef verið í alltof miklu fríi frekar en hitt... Búinn að eyða tíma mínum í endalaust kjaftæði, lesa teiknimyndabækur, horfa á Star Wars (sjá að ofan) og leika mér í tölvuleikjum. Er maður ekki gáfaður? Ég tel mig að minnsta kosti vera það.

Ætli ég reyni ekki að læra...