Óraunverulegt

I love people. I love my family, my children . . . but inside myself is a place where I live all alone and that's where you renew your springs that never dry up. - Pearl S. Buck

Name:
Location: Reykjavik, Iceland

Eg er eg. Ooh, eg held ad eg aetti ad vera heimspekingur

Monday, December 26, 2005


Ég gleymdi að setja mynd. Þessi er algjör gullmoli, sjáið svipinn á mér og náungan að dansa flamengó, mætti halda.

Ah... skoða gamlar myndir. Indland, þeir sem muna eftir því. Góðar minningar. Hvað ég hataði allt fólkið. Hvað allur maturinn smakkaðist af óskilgreindu kryddi. Vonda snakkið með tannkrems + chillibragðinu. Veikindi í Varanasi. >andvarp<... MEMORIEEEEES!

Anyway, smá nostalgía í gangi. Er annars hægt að kalla eitthvað fortíðarþrá (nostalgíu) ef það er aðeins hálfs til eins árs gamlar minningar? Bara velta þessu fyrir mér.

Ég gerði ekki neitt. Allt í allt, mjög stoltur af sjálfum mér. Ég fengi orðu letingjans fyrir daginn í dag ef einhver myndi nenna að gefa þau.

Er ekki yndislegt að hugsa, tala og skrifa í stykkorðum? Allt verður svo sundurlaust og samhengislaust að maður týnir sér í óútreiknanlegum skírskotunum hugsana manns sem bylgjast yfir innantómu heilabúinu. Reynið að segja þessa setningu hratt! Ha! Flott. Ég skil hana nær því ekki sjálfur. Ég er dálítið stoltur. Vá... ég er bestur.

Hvað sem því líður. Var að horfa á Before Sunset aftur. Ég elska þessa mynd. Alveg frábært að horfa á tvo einstaklinga halda uppi samræðum sem aðeins í villtustu draumum mínum get ég haldið uppi af eigin rammleik. Þessi ídealísku samskiptum við hitt kynið. Fræðilegt, yfirborðslegt, hæðið og fyndið, djúpt en um ekkert. Allt sem maður vill á þeim stutta tíma sem maður eyðir með einhverjum. Ég get ímyndað mér frumdrögin af myndinni: "Tvær manneskjur sem geta talað tæpitungulaust við hvort annað." Svo eftir 3 ár tekst honum að ljúka handritinu og þar með samtölunum því það er ómögulegt að geta snert á jafn mörgum ólíkum og áhugaverðum málefnum með einni manneskju án þess að lenda á vegg. Ég held það að minnsta kosti.

Mém þá er þetta aðeins færsla ætluð fólki sem getur lesið... ókey? Komið á hreint? Fínt!

Blíðum böndum leyst
orðum vara þeyst

Sunday, December 25, 2005

Ég er of fræðilegur í dag...

Wednesday, December 14, 2005


ÉG ER BÚINN!!! HAHAHAHAHAHAHAHAHA!!! BÚINN, ÉG SEGI ÞÉR, BÚINN!!!
utan fyrir eina ritgerð. Það er svo sem allt í lagi. Nema kannski ekki... eða hvað...
Múm í gangi, Yesterday was Dramatic - Today was OK. Langt síðan ég hlustaði á hann. Gott að rifja upp góðar minningar af þunglyndi. Þær gleðja mann svo mikið! meðan ég man (mém), þá er sniðugt að þýða ensk tölvuheiti yfir á íslensku. Bið um fleirri góð, ef þið hafið einhver.

Ég nenni ekki að fara að sofa. Ég er of latur til að sofa. Ég þarf að gera svo margt en geri ekkert. Hmm... ein hugmynd.

Sleppum því... kom ekki vel út.

Konkret ljóð hafa vond áhrif á mann, bara svo þið vitið. Þeir sem vilja kynna sér málið, skjótið ykkur. Ef það dugði ekki þá er hér einn linkur sem ætti að kveða niður alla löngun til að skilja þetta kjaftæði. http://www.ubu.com/papers/gomringer02.html Ég skemmti mér konunglega við að reyna að leggja einhvern skilning í þetta. Gekk á endanum, sumt er samt sem áður alveg nógu sturlað.

Það sem vantar er mynd... Svona... núna líður mér betur.

Ég var að skoða mjög áhugaverða síðu. Flest allir vita af því að rússneskar konur eru seldar sem eiginkonur. Jæja, fann eina slíka síðu en það sem mér fannst vera furðulegt er að það voru konur á mínum aldri þarna og yngri! Ok, einu ári yngri, en samt! Hvernig geta svona ungar konur verið að selja sig sem eiginkonur? Ég skil það ekki. Annað hvort eru standartarnir öðruvísi þarna með giftingaaldur eða ég er orðinn alltof gamall. Af einhverri ástæðu vona ég að það sé fyrri möguleikinn.

Vitið hvað? Ég nenni þessu ekki...

Bíttu í bola
eða bolabít

P.S. þar sem ekkert rým var þá hef ég ákveðið að gera nýtt.

Þarft að fá
vetrarnáð