Óraunverulegt

I love people. I love my family, my children . . . but inside myself is a place where I live all alone and that's where you renew your springs that never dry up. - Pearl S. Buck

Name:
Location: Reykjavik, Iceland

Eg er eg. Ooh, eg held ad eg aetti ad vera heimspekingur

Sunday, March 19, 2006

Þá er komið að því! Da dada DAAAA! Seinasta færsla af þvílíkri endemis vitleysu. Markmið mitt var að fá fólk til að blogga meira og mér tókst það!... Ekki. Hér eftirfarandi er yfirlit yfir þann fjölda sem fólk hefur bloggað síðan mán. 13 mars og raðað eftir fjölda færsla (í mánuðinum er líka innifalið það sem var skrifað þessa vikuna).

  1. Þórður: 2 færslur, 8 færslur í þessum mánuði
  2. Ásta: 2 færslur, 8 færslur í þessum mánuði
  3. Silla: 2 færslur, 3 færslur í þessum mánuði
  4. Atli: 1 færsla, 4 færslur í þessum mánuði
  5. Heiðar: 1 færsla, 3 færslur í þessum mánuði
  6. Krizzi: 1 færsla, 3 færslur í þessum mánuði
  7. Eiður: 1 færsla, 1 í þessum mánuði
  8. Stebbi: o færslur, 2 í þessum mánuði
  9. Jackie: 0 færslur, 0 færslur í þessum mánuði
Það sem gildir mest er hvað það voru margar færslur í þessari viku, þar á eftir í mán. Þeir sem ekki eru samþykkir þessari reglugjöf mega eiga sjálfan sig. Þeir sem ætla í mál við mig mega gera það aðra hvora helgi þegar ég hef tíma, á milli 12:00-13:00 uppi á Mýrdalsjökli við fullt tungl. Ég skora hér með á alla til að reyna að skrifa eina færslu á dag, sérstaklega þó Stebba og Eið. Allir þeir sem taka þátt í keppninni og standast hana fá að launum vegleg verðlaun. Því miður getur Jackie ekki tekið þátt þar sem hún er útlendingur og eins og allir vita þá er mér illa við þá. Ef þið eruð ekki á listanum hjá mér þá eruð þið ekki, eftir því sem ég veit best (og ég veit allt best), með bloggsíðu sem ég hef einhverja löngun til að sjá. Leiðréttingar á þessari staðreynd má tilkynna fyrir framan altarið í Kristskirkju (Kaþólsku kirkjunni) í miðri messu á Sunnudögum laust uppúr 11:00. Eða þá að koma upp að mér og tala við mig í eigin persónu, helst án hnefa, ég hef ofnæmi fyrir þeim.

Ég mun líta á síðurnar ykkar. Ég mun skrá niður. Ég mun sjá ef þið svindlið. Ég er alsjáandi, alvitur, alsráðandi og einnig alífugl öðru hvoru. Þeir sem vissu ekki af þessu, þurfa að fara í próf, lentu í lífshættulegu slysi, eru í dái eða almennt geta ekki af einhverri ástæðu bloggað innan tilætlaðs tíma hefur enga afsökun.

Tilkynna verður um þátttöku fyrir lok þessa mánaðar, seinasta færsla í seinasta lagi þann 11. apríl. Kommentið við þessa færslu ef þið takið þátt.

Ef færslur eru óáhugaverðar og stuttar þá munu þær ekki vera teknar gildar.

Þá er þetta komið. Enn og aftur Æ derh jah. Dobel derh yah.

13 Comments:

Blogger Eiður said...

Hey!

9:31 AM  
Blogger Kristinn said...

Jó!

12:18 PM  
Blogger Atli Sig said...

Spurning með að taka þessu...

5:10 PM  
Blogger Eiður said...

ég skil ekki alveg tímabil keppninnar. Og hvað á það að þíða að blogga ekki í dag?!

9:45 AM  
Blogger Kristinn said...

ég gerði viku. Ég er að biðja fólk um að blogga í viku og ef það tekst fær það verðlaun. Ef þú tekur þátt þá bið ég um að tilkynna hér svo ég viti það.

12:38 PM  
Blogger Fláráður said...

Ha, í viku! - mér finnst nokk gott ef ég næ einni færslu á viku.

2:35 PM  
Blogger Eiður said...

Captain's log, 22.mars: Áskorun mín hefst

5:09 PM  
Blogger Eiður said...

Vúbbs það er víst 21. mars.

5:11 PM  
Blogger Ásta Heiðrún Elísabet said...

bíddu á maður að blogga í viku?
á þessu mánaðartímabili?

hvabeha?

annars mitt draumóra og skáldlega sjálf neitar að láta þvinga sig til skrifta til að taka þátt í keppnum.

en er samt memm. þ.e. ef ég næ reglunum einhvern tímann...?

7:00 AM  
Blogger Heiðar Ingvi said...

Þetta er alltof flókið hjá þér. Ég man ekki eftir að hafa nokkurntíman bloggað oftar en tvo daga í röð. Svo þetta er tæplega möguleiki fyrir mig.

12:41 PM  
Blogger Kristinn said...

Hey, fólk! Ef þetta væri ekki erfitt að einhverju leiti þá myndi ég ekki hafa þetta sem áskorun. Þar sem þetta er erfitt þá ER þetta áskorun! Reglurnar eru mjög einfaldar, skrifa í viku, eitthvað meira heldur en tilgangslaus upptalning og ekki of stutt (ekki bara tvær línur sem segir einn "góðan" brandara t.d.). Svo er aðeins einn sem tekur þátt? Ég meina, ef ykkur tekst ekki að skrifa einu sinni á dag þá er það allt í lagi. Ég mun bara leigja mér nokkra CIA náunga sem ég þekki auk vina minna í Baug sem mun gera ykkur lífið leitt í heilt ár. Damn, ég er kominn núna með heila færslu.

9:03 PM  
Blogger Krizziuz said...

Klukkan er 8:16, 23. mars 2006 og Kristján "krizzi" Lindberg tekur áskorunni!

12:19 AM  
Blogger Eiður said...

Þetta er ekkert mál. 5 dagar eftir, lookin' good.

8:08 AM  

Post a Comment

<< Home