Óraunverulegt

I love people. I love my family, my children . . . but inside myself is a place where I live all alone and that's where you renew your springs that never dry up. - Pearl S. Buck

Name:
Location: Reykjavik, Iceland

Eg er eg. Ooh, eg held ad eg aetti ad vera heimspekingur

Monday, July 31, 2006

Við erum öll floginn út á nýjar slóðir og vitið þið, ég veit að ég mun vita það seinna. Hægt og bítandi breytist ég í einhvern annan heldur en sjálfan mig, Kafka-esque draumráðning á framtíð minni meðal manna.

Ég vil að þú hlaupir á eftir mér og kallir nafnið mitt á meðan ég geng hægt framhjá uppáhaldsstaðnum þínum í bænum, kannski jafnvel eina athvarfinu sem þú finnur í lífinu, bara svo ég viti að ég er hluti af lífi þínu. Ég mun reyna að gera það sama og um leið og þú áttir þig á að bara með þögn minni þá vef ég köngulóarvef í kringum bygginguna muntu koma. Ég dreg þig inn.

Mánudagar eru alltaf bláir og þessi er engin undantekning heldur er lögð ofuráhersla á þeim einkennislit þessa dags. Ég held að ég ætti að fara heim, láta Chet Baker í melonkolískri sveiflu sinni hræra í mér, draga úr mér einhverja týnda fegurð mannsins.

Ég stend á brún tómleikans en vitiði, tómleikinn er fullur af einhverju. Ég veit bara ekki hverju, langar að vita hvað það er sem veitir öðrum slíka ánægju að þau taka ekki eftir að leiksvæðið er tómt, ískyggilega undirlagt skuggum allt í kring á meðan bros læðast um andlit þeirra sem dansa í rigningunni. Ég held að fólk líti aldrei út fyrir brún tómleikans heldur leita sér huggunar og skemmtunar í fjölbreytileika andlita allra í kring þar sem hin fjölmörgu andlitsbrigði bregða fyrir ásjónir þeirra.

Ég get sagt að við verðum vinir á þeirri einföldu niðurstöðu að þú hefur lesið þetta, jafnvel meira. Ég óska þér til hamingju.

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Það er áskorun að skrifa athugasemdir við færslur þínar. Ertu að prófa fólk? Því þessi skítur er tormeltari en fiski"súpan" í Staðaskála (það var svitalykt af henni). En athugasemdin mín hljóðar svo (afsakið tungumálauppnámið): ,,To be is to be, there is no question!"
Eða: ,,Takk, þú ert líka vinur minn."
Annars, má ekki segja Kafkakenndur eða Kafkalegur því esque er svo illlesanlegt...sem illlesanlegt er reyndar líka.

5:55 AM  
Blogger Eiður said...

Nú ef þessi þögn veldur miklum ama þá bendi ég á meindýraeyði. Slíkur ætti að geta séð um umrædda byggingu.

11:21 AM  
Anonymous Anonymous said...

Að hverju vill fólk altaf níðast á mánudögum? Það er mikill misskilningur að mánudagar séu leiðinlegir eða óyfirstíganlegir. Hins vegar getur byrjun vinnuvikunar oft verið ógnandi, en það er oftast eithvað skemmtilegt á stöð 1 á kvöldin, sem dregur mann í gegnm daginn. Mánudagar eru nú byrjun. Njótum þess.

3:30 AM  
Blogger Kristinn said...

Ég ákvað að vera sniðugur og skrifa bloggfærslur sem byrjuðu alltaf á þýddum lagatexta.

nr. 1: Modest Mouse - Float On

nr. 2: Ani DiFranco - Make Me Stay

nr. 3: The Cure - Friday I'm In Love

nr. 4: The White Stripes - We're Going To Be Friends

Lögin voru af handahófi, áttu ekki að þýða neitt nema með tilliti til þess sem ég skrifaði á eftir. Mér finnst mánudagar fínir. Sérstaklega þegar þeir eru bláir.

Annars, gaman að fólk finnist þetta nógu áhugavert til að skrifa sína eigin litlu færslu um hana. Takk!

11:43 AM  
Anonymous Anonymous said...

sniðugt, virkilega sniðugt. Nú er bara um að gera og láta næstu færslu byrja á prímtölu lagagreinum, því þær rokka!

5:58 AM  

Post a Comment

<< Home